SPM líkamsmeðferð

SPM er frábær meðferð sem eykur blóðflæði, kveikir á sogæðakerfinu, losar um stíflur í vefjum og þéttir/lyftir húð ásamt því að vinna vel á appelsínuhúð (cellulite)

Þessi meðferð er mjög þekkt í Þýskalandi og er mikið notað í líkams- og andlitsmeðferðum á snyrtistofum þar. SPM er ævagömul aðferð og hefur verið notuð víða um heim í lækningarskyni. Nuddið er heildræn andlits- og/eða líkamsmeðferð. Meðferðin er notuð til að sía út umfram sogæðavökva, endurnýja húðvefinn, örva efnaskiptin og/eða fitubrennsluna (tilvalið fyrir vandamálasvæði) eða einfaldlega til þess að gera húðina stinnari. SPM hefur einnig sannað sig vel í baráttunni við appelsínuhúð (cellulite) og fitubjúg (lipedema) Oftast er sjáanlegur árangur strax eftir meðferðina en að sama skapi finnur meðferðaraðilinn fyrir aukinni vellíðan.

Meðferðin hentar öllum þeim sem sækjast eftir fljótvirkum en jafnframt viðvarandi árangri. Hægt er að framkvæma líkamsmeðferðir á mismunandi svæðum líkamans td. magi, rass og læri, hendur sér, magi sér eða hvernig sem hentar viðskiptavininum best. Tími meðferða er því mismunandi en er á milli 30-60 mínútur.

Ávinningurinn er aukið blóðfæði og sogæðaflæði sem dregur úr þrota. Meðferðin vinnur líka á árangursríkan hátt á öldrun og gefur lyftingu í andlitið

Meðferðin vinnur á djúpum og fínum fínum, slappri húð, blettum, opinni húð og örum (t.d eftir unglingabólur)